Virðulegi forseti.
Ég hef fylgst með áhuga af því hvernig þú hefur hafið kosningabaráttu þína fyrir forsetakosningarnar sem fram fara í sumar. Ég kaus þig árið 1996, enda varstu þá draumaframbjóðandi frjálslyndra vinstri manna og fleinn í síðu íhalds, auðvalds, Moggaveldisins og ekki síst Davíðs Oddssonar. Ég stóð meira að segja í ritdeilu fyrir þig í Alþýðublaðinu sáluga, þar sem við tókum það að okkur nokkrir að „dekka“ Hannes Hólmstein Gissurarson. Kjör þitt olli mér töluverðri kátínu fyrir sextán árum.
Þá gerðu forsetaframbjóðendurnir sjálfir sér aftur á móti sérstakt far um að vera kurteisir og málefnalegir í fasi og framgöngu, hvað sem segja mátti um „starfsmenn á plani“. Þeir kölluðu hver annan meira að segja „meðframbjóðendur“ en ekki „mótframbjóðendur“. Nú hef ég á hinn bóginn tekið eftir því að þitt fyrsta verk í kosningabaráttunni var að draga með mjög svo afdráttarlausum hætti úr trúverðugleika eins meðframbjóðanda þíns, Þóru Arnórsdóttur. Þú gekkst jafnvel svo langt að kalla hana „mótframbjóðanda“.
Þóra Arnórsdóttir er ung kona með ríka réttlætiskennd. Eins og títt er um fólk með réttlætiskennd, m.a. mig sjálfan, hefur hún komið nálægt pólitísku starfi með þeim flokki eða flokkum sem hún taldi skoðanir sínar eiga mesta samleið með. Ólíkt þér lét hún það þó eiga sig að helga líf sitt því að ná frama á þeim vettvangi, hvað þá að hún hafi flakkað á milli flokka þar til hún fann einn þar sem hún taldi sig fá persónulegri metorðagirnd sinni fullnægt. Flestar siðferðisverur verða nefnilega afhuga íslenskum stjórnmálum mjög fljótlega eftir að þær kynnast innviðum þeirra af eigin raun.
Þóra fann sér þess í stað starsvettvang í fjölmiðlum. Þar hefur hún reynst sannkölluð afburðamanneskja og hlotið verðlaun fyrir störf sín. Hún gerði t.a.m. mjög fróðlega og vandaða heimildaþáttaröð um efnahagshrunið á Íslandi haustið 2008. Hún þekkir því flestum betur forsögu þess og orsakir, þar með talið þátt þinn í þeim atburðum sem urðu þess valdandi að efnahagslíf landsins var lagt í rúst. Má þar nefna „You ain‘t seen nothing yet“ ræður þínar, ferðir þínar heimshorna á milli í einkaþotum útrásarvíkinga og það hvernig þú ítrekað hóraðist með æðsta embætti þjóðarinnar í þágu hagsmuna þeirra. Það skýtur því óneitanlega dálítið skökku við að þú, af öllum mönnum, skulir kalla hana „2007 frambjóðanda“. Öllum óbrjáluðum mönnum er deginum ljósara að þú ert eini „2007 frambjóðandinn“ í þessum slag og að sá, sem með ítarlegustum hætti hefur kynnt sér allt sem varðar hrunið, er Þóra Arnórsdóttir.
Núverandi ríkisstjórn hefur fengið það lítt öfundsverða hlutskipti að hreinsa til í rústunum sem þessir gömlu velunnarar þínir og velgjörðarmenn ásamt átján ára einræði hömlulausrar frjálshyggju skildu eftir sig. Í nafni hennar voru glæpamönnum gefnar sameignir þjóðarinnar, sem þeir síðan mergsugu inn að beini og steyptu vísvitandi í gjaldþrot eftir að hafa falið fenginn í útlenskum skattaskjólum. Ríkisstjórninni hefur gengið illa með hreinsunarstarfið, svo illa reyndar að aðeins er hægt að ímynda sér að þrír aðrir stjórnmálaflokkar hefðu mögulega getað staðið sig verr. Auk þess hlýtur hver maður að sjá að þetta er varla nokkur vinnandi vegur. Tjónið sem núverandi stjórnarandstaða og hinir glæpamennirnir, þínir gömlu vinir, ollu jafngildir því að hvert einasta hús á Íslandi hafi brunnið til kaldra kola. Ríkisstjórnin er því afar óvinsæl um þessar mundir, sem að mörgu leyti er skiljanlegt.
Það er því sorglegra en tárum taki að í Morgunblaðsviðtali sl. mánudag skulir þú reyna að afla þér samúðar út á óvinsældir ríkisstjórnarinnar með því fullyrða að Þóra sé sérstakur frambjóðandi Samfylkingarinnar, nánast einhvers konar holdgerð hefnd ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir það hvernig þú tókst á Icesave málinu, jafnvel þótt Þóra njóti samkvæmt skoðanakönnunum mun meira fylgis en ríkisstjórnin. Þessu slettir þú fram án þess að hafa neitt fyrir þér í því annað en „bernskubrek“ hennar í pólitík og þína eigin sannfæringu um meintan fjandskap forsætisráðherra í þinn garð.
Það fyllir mig ómældri hryggð að þú, af öllum mönnum, skulir leggjast svo lágt að reyna að afla þér fylgis með því að ala á ótta við grýlu af þessu tagi. Íhaldið beitti „kommagrýlu“ fyrir sig með góðum árangri áratugum saman. „Samfylkingargrýla“ þín er að öllu leyti jafnauvirðuleg og lúaleg.
Mig langar því að spyrja þig þriggja spurninga sem brenna á mér og mig klæjar í að fá svar við sem allra fyrst:
- Hefurðu virkilega engan snefil af sómakennd lengur?
- Hvernig tilfinning er það að vera núna draumaframbjóðandi íhalds, útgerðarauðvalds, Moggaveldisins og síðast en ekki síst Davíðs Oddssonar?
- Grunaði þig einhvern tímann að inni í þér sjálfum leyndist svona skítlegt eðli?
Með kveðju,
Davíð Þór Jónsson
Skrifa undir þetta bréf líka
Því miður satt og rétt.
Eins og talað úr mínu hjarta
„. . . . . . ferðir þínar heimshorna á milli í einkaþotum útrásarvíkinga og það hvernig þú ítrekað hóraðist með æðsta embætti þjóðarinnar í þágu hagsmuna þeirra. Það skýtur því óneitanlega dálítið skökku við að þú, af öllum mönnum, skulir kalla hana . . . . . . . “ Beittur pistill!!
Fyrir hvaða flokk(a) starfar þú Davíð Þór?
Ég starfa ekki fyrir neinn og flokk og er ekki í neinum flokki.
Úr hvaða flokki, hvað kemur það málinu við. Er eitthvað ósatt þarna??
Takk fyrir þetta Davíð Þór, vel mælt og góðar ábendingar.
Orð í tíma töluð. Skora á meðframbjóðendur forsetans að fara ekki niður á hið lága plan sem ÓRG virðist ætla sér samkvæmt byrjun á hans “ baráttu „. SÓ
Það erfitt annað en að vera svolítið hrifinn af þessum pistli.
Amen
Góður pistill, mun líklega kjósa taktískt þannig að Ólafur nái ekki kjöri.
ætla einmitt að spila þannig strategíu! 🙂
Mér finnst að forseti Ísland eigi að reyna að greiða götur allra sem að hann getur hvort sem að það er á Íslandi eða erlendis. Ef að hann talar fyrir einhverjum sem að kemur svo í ljós að er pedó þá er ekki hægt að spóla til baka og segja þú hefðir ekki átt að greiða honum götu þú áttir að vita það að hann var pedó. Ekki frekar en að hann átti að vita það frekar en allir aðrir á Íslandi að þetta voru allt fjármálaglæframenn.
øOlafur hefur víst ávalt verið efst í huga að greiða eigin götu!! 😉
Og svaraður nú Ólafur Ragnar!
Mér er skapi næst að klappa fyrir þér svo sammála er ég þessarri grein þinni.
Ritað á góðri íslensku – takk Davíð Þór!
Frábær og sönn grein þetta ég hef kosið Ólaf til þessa en því er lokið.
sammála Davíð! .. og Steini Jónssyni! … mun líklega kjósa taktískt þannig að Ólafur nái ekki kjöri.
Harður pistill og óvæginn. Því miður er hvert orð satt!
Þetta eru allt góðar ábendingar, svo sannarlega orð í tíma töluð.
Davíð. Ég geri ráð fyrir að þú sért einn að þeim kaunum sem vildir ekki að Icesave færi í þjóðaatkvæðagreiðslu? Hvernig var afstaða þín í sambandi við fjölmiðlafrumvarpið? Vakti það ekki með þér „kátínu“?
Það er rétt, ég taldi á sínum tíma ekki rétt að setja Icesave í þjóðaratkvæði, en eftir á að hyggja – ég meira segja tjáði það í útvarpsviðtali – gekkst ég við því að það hefði verið snjallt hjá forsetanum að gera þetta og ég hefði haft rangt fyrir mér. Fyrir vikið var þegar búið að ná betri samningum þegar loks var gengið að kjörborðinu. – Ég fylgdist lítið með fjölmiðlafrumvarpinu, en það olli mér vissulega kátínu hvað DO og hirð hans var spæld. Annars skil ég ekki hvað það kemur málinu við. Þessi pistill er um lúalega og vægast sagt ósanngjarna framgöngu ÓRG í kosningabaráttunni, að mínu mati, ekki um Icesave eða fjölmiðlafrumvarpið.
(Kaun er „hrúður, skeina, kýli, sár“. Ég vona að þú hafir meint „kónum“ („náungi, þorpari“).)
Icesave hefði aldrei þurft að fara í þjóðaratkvæðagreislu. Það var mikilvægt að semja við Breta og Hollendinga en vaxtakjörin voru aukaatriði eins og viðskiptaráðherra sagði þá: Ef við fáum síðan betri kjör annars staðar, borgum við bara upp hér og tökum annað lán.
Það er almennt ekki hægt að setja mál um að borga eða borga ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu. Meirihlutinn heldur alltaf að hann hafi raunverulega þann kost að borga ekki — og því þá ekki velja hann? En sá kostur hefur aldrei verið fyrir hendi.
http://9gag.com/gag/2400070
Takk fyrir ábendinguna, Árni. 😉
Vel mælt, vinur.
Er þér sammála . En sagan segir okkur að þessi maður muni bara svara með skæting, ef hann svarar !
Ferð mjög vel af stað en missir þig meir og meir eftir því sem líður á seinni hlutann og algerlega í lokin.
Þú náiðir mér algerlega í fyrri hlutanum en svo kom þinn sérstæði „dirty“ húmor í endanum. Grein sem hefði getað orðið sterkur stuðingur við Þóru snerist upp í andhverfu sína.
Þú flokkar þig sennilega sem starfsmann á plani en gættu að því að Þóra er á miklu hærra plani með sína kosningabaráttu.
Meðan þinn beitti penni er á þessum stað gerirðu henni takmarkað gagn ef nokkuð.
Með þessum skrifum tókst þér að undirbjóða Ólaf sem mér fannst nú byrja nokkuð lágt samt.
Góð grein sem tekur fyrir flest sem máli skiptir.
Það var tekið fram i byrjun af pislahöfundi að til kurteysi væri ætlast af þeim sem settu inn skb. .sem sjálfsagt er ..En þar sem hann endaði pistilinn með að sýna sitt skitlega eðli fullkomlega,vil eg segja. Amen eftir efninu …og er þá pistalhöfundi og forsetanum gert jafnhátt undir höfði !!!
Fyrirgefðu ef ég gekk fram af þér. Mig langaði bara að sýna fram á að málflutningur forsetans núna er að mínu mati á nákvæmlega sama plani og sá sem hann sjálfur taldi á sínum tíma bera vott um „skítlegt eðli“.
rett netfang og nafn sem mistitaðist …
já umgengni lýsir innri manni
Þráhiggja eftir á sem dannebrogsriddari. Um þá var hveðið’.
– –
Yfir marga alveg gekk
út af slíkri hneisu,
riddarakross þá fíflið fekk
fyrir að liggja í kveisu.
Ég kaus ÓGR á sínum tíma á sömu forsendum og DÞJ gefur upp hér að ofan. Ég er svo hjartanlega sammála þér Davíð í þessum pistli þínum. Frábærar athugasemdir hjá þér.
Takk fyrir.
Smáfuglarnir sjá að Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi Samfylkingarinnar, reynir nú að þvo af sér fortíð sína í vinstriflokkunum. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að gamall listi yfir kennara í stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar fór á flakk á netinu og Þóra neitaði að hafa kennt í skólanum. Ekki voru netverjar með frekari sönnunargögn svo málið féll sumpart niður.
Vilhjálmur Þorsteinsson og Þóra Arnórsdóttir í Kastljósi voru vopnabræður í framboði fyrir Alþýðuflokkinn 1995.
En hafa netverjar gleymt því að Þóra var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn árið 1995? Á meðfylgjandi mynd má sjá að með henni í framboði það árið var til dæmis helsti fjárhaldsmaður Samfylkingarinnar og gjaldkeri, Vilhjálmur Þorsteinsson, ásamt öðrum innstu koppum í búri Samfylkingarinnar.
Þeir sem þekkja störf í stjórnmálaflokkum vita að fólk fer ekki fyrirvaralaust í framboð fyrir flokk og hættir svo störfum fyrir flokkinn jafn harðan eftir kosningar. Pólítísk staðsetning Þóru er því öllum ljós sem og hvað varð um Alþýðuflokkinn.
Hvers vegna viðurkennir frambjóðandi Samfylkingarinnar ekki fortíð sína í stjórnmálum?
Veit ekki betur en að Þóra hafi alltaf viðurkennt það og nú síðast í viðtali á Stöð 2 fyrir tveimur dögum. Hvaða rugl er þetta að hún hafi ekki viðurkennt það? Hún fór í framboð fyrir Alþýðuflokkinn en það er líka eina framboðið hennar og hún hefur alltaf viðurkennt það. Það voru samt margir í Alþýðuflokknum sem ekki fóru í Samfylkinguna og Þóra er ein þeirra. Þetta hefur alltaf verið ljóst og ætti að vera þér ljóst ef þú bara vildir vita það.
Já frekar spes, ég á þetta sama viðtal og hún var ekkert að neita fortíð sinni í stjórnmálum. Ég skil ekki alveg þessa mítu á netinu að hún sé að reyna að breiða yfir þetta.
Ég er svo hjartanlega sammála þér Davíð í þessum pistli.
Algjörlega sammála!
Ssammala timi hans er lidinn
Þessi stúfur er ritaður af meiri auðmýkt en efni standa til.
Menn hljóta að setja spurningarmerki við réttlætiskennd svokallaðra jafnaðarmanna sem tefla manninum fram í upphafi.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=192326&pageId=2560094&lang=is&q=Pr%FA%F0b%FAi%F0%20rangl%E6ti
Ólafur er beittur og skemmtilegur, fær mitt atkvæði í 100 ár fyrir að losa okkur undan isafe bullinu.
Ódýrt er atkvæði þitt.
Taer snilld hja ter Davíð Þór Jónssyni 🙂 vel maelt og svo satt 🙂
Já, hún veit allt um Hrunið, hún Þóra! Í staðinn að hirða upp mygluðu brauðmolana, átti hún að sýna meira aðhald FYRIR hrun! Í raun og veru sást ótrúlega vel hve litil rannsóknarfréttamennska er og almenn fréttamennska er ódýr. Nú, nýjasta dæmið er um nýfluttu álfanna til Eyja! Svona fréttamennska var er náttúrulega hluti af hruninu! Flokkaflakk Ólafs er vel afsakanlegt!
Besta leiðin til að þekkja Ísland er að fara á milli stjórnmálaflokka!
ég segi bara, þökk þökk!
Haltu áfram á þessari braut að skilgreina þátt forsetans í aðdraganda hrunsins og hvers vegna eigi að hafna honum í dag. Þarna ertu mun skeleggri en í feministaumræðunni sem þú hættir þér út á forðum.
Það liggur greinilega illa á fleirum en mér, þó ekki séu ástæðurnar alveg þær sömu. Hvað ætli orðið „sleggjudómar“ annars þýði ???
Verst þykir mér þó Davíð, að þú skulir hafa stutt hann árið ’96. Ég man að í þá daga ætlaði ég líka að gera það, en snerist hugur.
Og á þá líka að skammast í Þóru ef að hún flýgur með einkaþotum?? Nei ég bara spyr.
Held að Davíð hafi átt við með orðinu „einkaþotur“ þær þotur sem eru í einkaeigu. T.d. útrásarvíkinga.
„Núverandi ríkisstjórn hefur fengið það lítt öfundsverða hlutskipti að hreinsa til í rústunum sem þessir gömlu velunnarar þínir og velgjörðarmenn ásamt átján ára einræði hömlulausrar frjálshyggju skildu eftir sig.“
Sorglegt að heyra þetta ennþá. Bara ríkisstjórnin er ekkert að hreinsa til og mér sýnist það aldrei hafa staðið til. Reisum Skjaldborg um Heimilin … *joke
Og sorglegt að þú sért að verja þessa „ríkisstjórn“
Ég er þér hjartanlega sammála Davíð Þór, þetta er ekki góð aðferð til að fá virðingu
Sama hversu mikid skrifad er og hlutunum velt fyrir ser, verdur alltaf einhver misskilningur, eda kannski ekki misskilningur, heldur frekar vid „tulkum“ skrif eftir eigin huga:) Er ekki nog inni i isl.samfelagi nuna svo um greinina tjai eg mig litid, en langar samt ad vita eitt: Til hvers tarf ORG einkaflugvel? Fylgdi hun starfinu og getur hann ta sparad launin sin i stad tess a fljuga med Icelandair eda Icelandexpress.
Þjóðin vill ekki ríkissstjórnina sem nú situr. Þess vegna kýs ég Ólaf. Til að skapa mótvægi. Er hræddur við „kleinuframbjóðendur“ eins og Þóru.
Gvöð ó gvöð hvað ég sakna réttritunar í Íslensku málfari.
Fyrirgef Davíð Þór allskyns eldri gloríur fyrir þessi orð sem svo margir myndu vilja gera að sínum. Takk fyrir frískandi andblæ hreinskilninnar.
Þetta þikir mér mjög óhnitmiðað bréf bygt á vangaveltum og röklausum hugmyndum um að hinn og þessi sé fullur réttlætis kennd,
og að aðrir séu með skítlegteðli og elski Davíð Oddsson vegna þess að þeir tala um „mótframbjóðanda“ og allt í einu er það forsetanum að kenna að það hafi verið hrun.
Talandi um Kreppu klám
Leiðrétting: þykir* – byggt* – réttlætiskenndar* – það er aldrei samtengiorð (og/en) á eftir kommu* -skítlegt eðli*. Fyrsta setningin hljómar eins og hún sé skrifuð af barni (og og og). Hér vantar allavega einn punkt eða tvo. Þetta er greinilega ekki lesblinda þar sem flest orð eru rétt skrifuð. Þyki þér bréf þetta óhnitmiðað þegar öðrum þykir því öfugt farið, þá gerum vér oss grein fyrir því að þér hafið lítinn skilning á skrifum Davíðs Þórs.
Þú hlýtur að vera að grínast Snorri….
Þó þú notir þérun þá ættir þá er ekki þar með sagt að þú skiljir pistla betur en aðrir sem mögulega kunna að skrifa/stafsetja illa.
Þetta þykir mér lélegt svar hjá manni sem finnur ekki rök og ákveður að fara leikskólaleiðina og „hía“ á viðkomandi til að gera lítið úr því sem hann sagði.
Það skal samt tekið fram hér að skoðun mín á þessum pistli hefur ekki enn komið fram heldur er þetta skoðun mín á „skítlegu“ svari þínu.
Líkt og þú kaus ég Ólaf fyrst, en aðeins vegna þess að Björgólfur Guðmundsson og fleiri pótintátar birtu heilsíðuauglýsingu í Mogganum, þar sem varað var við manninum.
Nú er svo komið að þessir sömu „snillingar“ styðja Ólaf öðrum fremur.
Það grátlega er að Ólafur heldur að þessi framvinda sé til marks um að Ísland þurfi á konungsveldi að halda.
Hér er afar kjarnyrt grein í orðsins fyllstu merkingu ! Þú ert hugdjarfur og kann ég því vel.
Eins og talað úr mínu hjarta, kallinn er klikk…
Skarpur og skemmtilegur pistlahöfundur Davíð Þór, leitun á slíkum nú um stundir. Og hér er ekkert ofsagt.
Heill og sæll Davíð
Um margt erum við sammála, en ég get hinsvegar engan veginn séð að það sé eitthvað stórmál að Ólafur hafi kallað Þóru mótframbjóðanda en ekki meðframbjóðanda. Þegar Ólafur bauð sig fram til forseta 1996 gengdi hvorki hann sjálfur né nokkur hinna þáverandi frambjóðenda embætti forseta. Þeir voru því meðframbjóðendur. Að sama skapi hlýtur það að vera mótframboð þegar boðið er fram gegn sitjandi forseta eða ég tel það í það minnsta fullkomlega málfræðilega rétt og ekkert við það að athuga. Finnst þetta einfaldlega dæmi um það hvernig dægurþrasið kryddar ummæli fólks með persónulegum og oftar en ekki pólitískum skoðunum þeirra sem á þau hlýða. Ég hlustaði t.d. á þetta viðtal við forsetann og fannst það hvergi nærri eins svakalegt of fjölmiðlar á borð við DV vildu gera skóna að. Held að það merkilegasta við viðtalið sé hversu margar mýflugur urðu úlfaldar svona eftir á að hyggja.
Það myndi hrófla við innsta „eðli“ mínu ef næsti fjölmiðlamaður sem tæki viðtal við hinn náðuga herra, forsetann, myndi spyrja hann út i pistil Davíð Þórs og ef sá allra náðugasti kannaðist ekki við hann að honum yrði þá lesinn pistillinn. Í heild.
Kærar þakkir Davíð Þór.
Ég man eftir því að ég var í slag við mína jafnaldra og studdi Kristján Eldjárn, studdi Vigdísi dyggilega, en engan studdi ég eins vel eins og Ólaf Ragnar þegar hann sóttist eftir búsforáðum á Bessastöðum og hef alltaf stutt hann til þeirra verka. Hann er hins vegar ekki sami sami ÓGR og ég man eftir honum. Nú er hann einn af útrásarvíkingum. Ég styð Þóru.
Góður og beittur pistill,
Sitjandi forseti þarf að stilla sig um að ráðast á með/mótframbjóðendur sína. Að sitja í embætti og fara yfir ferilskrána á að vera nóg til að vera kosinn ef þjóðin vill hann. ÓRG í kosningaham er ógeðfellt að þurfa að horfa upp á, klækir, dylgjur og aðrar aðferðir stjórnmálanna finnst mér óviðeigandi af ÓRG að viðhafa. Svo því miður er seinasta spurningin þín Davíð eðlileg og réttmæt. Þótt hún sé ljót.
Kæra þakkir fyrir skrifiríið Davíð Þór.
Þettað teljum vér góða grein og vel skrifaða. Hér er farið laust í byrjun og létt yfir en sem og hnífsblað, þá er byrjað við hjöltu og endað við odd. Óskaplega þykir oss grein þessi skemmtileg lestrar og fágæt smíð sé miðað við aðrar í sama geira. Davíð Þór hefur ætíð verið í uppáhaldi mínu yfir menn sem þora að segja sitt – oftsinnis kallað að „drulla yfir“. Heill þér Davíð hinn Rétti!
Samkvæmt rannsóknarskýrslu Alþingis voru fjölmiðlarnir partur af útrásarliðinu og voru harkalega gagnrýndir. Var ekki Þóra partur af því?
Takk fyrir að voga þér að setja á blað það sem margir eru að hugsa og velta á milli sín yfir kaffibollum hversdagsins. En hvernig datt þér í hug að kjósa pólitískan ref í embætti forseta Íslands árið 1996? Og svo ertu hissa á öldurótinu? Ég segi nú bara: mikil er ábyrgð þeirra sem kusu Ólaf Ragnar … héldu kannski að þeir væru að kjósa Guðrúnu Katrínu?
Frábært bréf til þess að styrkja þá í trúnni sem vilja kjósa Þóru. Líklega lítil áhrif á aðra
00
++
Hafðu þökk fyrir Davíð Þór, sé ekki að hægt sé að orða þetta bréf betur. Það vita það flestir vina minna að ég kaus Ólaf Ragnar til þings á sínum tíma, enda alin upp á íslensku alþýðuheimili, þar sem jafnrétti, bræðralag og félagshyggja var höfð að leiðarljósi.
Ekki veit ég hvað breyst hefur hjá ÓRG síðan hann var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, en kannski að maður fái einhver svör í svari hans við þessu opna og skilmerkilega bréfi Davíðs Þórs til forseta íslenska lýðveldisins.
Það er alveg sama hvað ég reyni, ég finn ekkert í bréfinu sem mér finnst ómaklegt og satt best að segja hryggir það mig meira en hitt. Það er ótrúlega dapurlegt að finna forsetanum engar málsbætur. Ég er búin að pósta úrdrætti þessa bréfs á FB vegginn hjá mér, en finnst rétt að það fái að vera í heild sinni þar og tvítek þar með gjörninginn. Takk aftur Davíð Þór.
++++++++++++++++++++++++++++
Hressandi pistill, Davíð. Ég er sammála Vilhjálmi, sá sem býður sig fram gegn sitjandi forseta er mótframbjóðandi og allt í lagi með það. Reyndar hefði ég sleppt spurningunum – þær eru bara særandi, ekki satt.
Hverju orði sannara. Sigri réttlætið.
Ég held að enginn hér hafi raunverulega hugsað málið til enda. Þóra mun ekki bjarga neinu. Jóhanna mun ráðskast með hana eins og henni einni er lagið, en hún ræður ekki við Ólaf, Ef þið endilega viljið kjósa Þóru, losið okkur þá við bæði Jóhönnu og Steingrím.
……….mundu það að Jóhanna og Steingrímur verða ekki við völd nema í mesta lagi níu mánuði eftir að nýr forseti tekur við.
Hvað eg hann hættir um mitt kjörtimabilið eins og hann hefur sagt, hver tekur þá við?
Davíð Þór Góður!
Skítlegt eðli?
Sjaldan fellur klámið langt frá kúknum.
Vá hvað þetta er fyndið Páll. Ertu að skrifa brandarabók?
Get bara ekki skilið tilgang þinn með þessari grein og að fólk skuli mæra þín skrif dæmi hver fyrir sig en það eru allir mannlegir og geta gert mistök, Alllir þeir sem eru í framboði eru örugglega frábærar manneskjur og hafa margt fram að færa. En hvernig þú ræðst að sitjandi forseta er ekki prestlæðum manni til sóma. Þú ert sá aðili sem bendir þínum söfnuði á. AÐGÁT SKAL HÖFÐ Í NÆRVERU SÁLAR.
það sem þú setur frá þér á prenti fylgir þér alla tíð ert þú ekki sá aðili sem starfar við sálgæslu? Hafðu það sem allra best í þínu lífi.
Þakka þér árnaðaróskirnar. En fyrst þú spyrð: Tilgangur minn með þessum skrifum er að benda á að aðför forsetans að Þóru Arnórsdóttur er að mínu mati síst á hærra plani en sá máflutningur sem hann kallaði sjálfur dæmi um „skítlegt eðli“ fyrir nokkrum árum úr ræðustóli Alþingis.
Þú upphefur Þóru, Gagnrýnir Ólaf fyrir að styðja við Ísland, þó vissulega hann hafi gert mistök en við erum víst öll mannleg. – Annars man ég ekki öðruvísi eftir Íslandi en að hér hafi alltaf allt verið á hausnum efnhagslega. Vissilega kom 18 ára tími sem við ofmetnuðumst.
Gjaldþrot Íslands er eingöngu mein í höfði vinstri manna. Efnahagslegt heilbrigði snýst mest um verðmætasköpun lands á hverjum tíma. Snýst ekki um aðra mynt eða inngöngu í sambönd – en snýst vissulega um hverjir stjórna landinu. Sorglegt hvernig vinstri menn ætla þrátt fyrir vilja meirihluta þjóðarinnar að troða ofan í okkur annað efnahagslegt stórslys.
Afsakið… En ég hreinlega þoli ekki þetta Aðgát skal höfð í nærveru sálar klám. Þetta orðtak á við nærgætnar persónulegar aðstæður, en ekki opinberar persónur sem eru farnar að hegða sér eins og verstu durtar og ala á hatri og heift gagnvart þjóðfélagshópum. Það á að vera í lagi að gagnrýna valdhafa. Þeir eru ekki öryrkjar, fórnarlömb, minnihlutahópar eða börn.
Var það ekki Davíð Oddson sem bar fyrst kennsl á útrásarvíkingana. Megin þorri þjóðarinnar og forseti okkar fannst þessir menn vera að gera góða hluti og Davið með einhver leiðindi. Mótframboð og meðframboð finnst mér ekki stórmál.
Mér þykir mjög leitt ef þessar kosningar fari út í það að vera með skítkast út í hvert annað, það er nóg komið af þeirri vitleysu.
Hef ekki gert upp hug minn hvern ég ætla að kjósa, en ég vona að við fáum góðan og farsælan forseta sem verður góð kynning fyrir land okkar og þjóð.
Kæri guðfræðingur og ný-Seyðfirðingur, þú ert vel ritfær og skrifar skemmtilegan stíl, en það er alltaf skynsamlegt að spara stóru orðin, ekki síst ef menn sækjast eftir prestsembætti, en þá gildir að vera allra, ekki síst þegar kemur að sálusorgun. Þú hefðir alla vega átt að sleppa spurningunum í lokin.
Að mínu mati eru það aðskilin mál hvort fólk telur að Ólafur hafi staðið sig vel eða illa í embætti og svo hitt hvernig hann hefur geð í sér til að heyja kosningabaráttuna. Ólafur hefur að mínu mati bæði staðið sg vel og illa í embætti. Hann hefur gert margt vel, annað miður vel og því miður eru þau atriði sem mér mislíka þess eðlis að ég einhvernegin bara kann ekki við manninn. Þjóðremban og yfirlætið hefur stundum valdið mér töluverðri ógleði. Ég hélt þó alltaf að Ólafur væri klár maður, sú skoðun mín er á undanhaldi þegar fylgst er með afstöðunni til fólks sem hann opinberar með skítkastinu. Að hann skuli vera sá frambjóðandi sem er fyrstur til að hefja svona viðbjóð hefur sett manninn mjög niður í mínum huga. Ég mun aldrei kjósa til forseta sem gefur sig út á þennan hátt og ef sá frambjóðandi sem ég hef nú í huga að kjósa hefur ekki vit á að sleppa því að taka þátt í svona þá held ég að ég bara vilji engan forseta hérna. Ef við fáum ekki grandvara persónu í embættið er það einskis nýtt.
Óli er líklega hræddur við Þóru og því fagnar hann ekki hennar „mótframboði“. Hann hefur alveg gleymt þeirri gagnrýni sem hann stóð sjálfur frammi fyrir þegar hann bauð sig fyrst fram ´96. Mörgum þótti fáranlegt að pólitíkus í stríði við Davíð Oddson skyldi bjóða sig fram. Nú er það gleymt að „hlutdrægur“ aðili geti haft eitthvað nýtt fram að færa. Ólafur úr pólitík og Þóra úr fjölmiðlum.
Óli gerði sig eiginlega að algjöru fífli- þegar hann tók að sér að vera áróðursmaskína fyrir sukk og svínarí útrásarinnar, slæm mistök. Enginn getur sykurhúðað þá staðreynd þótt hann reyndi. Mig langar að refsa fyrir þetta fáránlega kæruleysi Ólafs og gefa Þóru tækifæri, enda er hún mjög frambærileg.
Það er auðvelt að drulla yfir manninn eftir á. Ég man ekki betur en að íslenska þjóðin hafi fyllst stollti í hvert skipti sem útrásarvíkingarnir og Ólafur kóngur fóru í víking og allir blásnir upp af þjóðrembingi.
Hann má þó eiga það að hann skaut Icesave til þjóðarinnar og hefur reynst frekar óvinsæll meðal þeirra sem vilja koma á alþjóðlegri ríkissstjórn og alþjóðlegri skattheimtu, einhverskonar einkavæddur kommúnismi yfir heiminn allann. (Kallast á ensku New World Order og er óhuggnalega langt á veg komið, sennilega fyrir röð einstakra tilvika og tískubylgju í banka heiminum).
Davíð Oddsson kom frjálshyggjunni á og landið reis upp úr sæ, en hann passaði sig ekki á að peningar spilla fólki og hefði átt að grípa í taumanna miklu fyrr sem seðlabankastjóri t.d.
En svona er ísland nú yndislega smáborgaralegt 🙂 Skítkast á öllum vígstöðvum og hver bendir á hinn.
Góður pistill Davíð Þór þakka þér fyrir
Hvaða stefnu ertu að stiðja minn kæri Davíð, hvaða markmið hefur húní starfi, hvort ættlar hún að svíkja þjóðina eða börnin, veistu hverra manna þetta apparat er. Hún hefur enga stefnuskrá og svarar til með engum svörum enda skilst mér að það sé sami kostingastjóri hjá henni og hjá Jóni Gnarr…..“svona allskonar“ sem við þesskum hversu vænleg er til árangurs. Forseti Líðveldisisns er „sðlumaður“ þjóðarinnar og hún er vonandi ekki að fara að skilja nýfætt barn eftir heima á meðan hún kynnir land og þjóð. Hún er náskild einum ómerkilegasta manni sem þjóðin hefur af sér alið, Jóni Baldvin og sver sig vel í ættina að mér skilst af þeim sem til þekkja. Hún ber af sér pólitík og tengingar við flokka……þar er hún hún farin að ljúga blessunin sem er ekki gott svona í upphafi baráttunar um embættið, samt eitthvað sem er henni í blóð borið. Þessi strengjbrúða vanhæfrar ríkisstjórnar á vel skilið þau skot sem Ólafur hefur látið frá sér og vona ég að hvorugt komist að. Kynnum landið okkar með manni sem þekkir það besta og fegursta sem það hefur upp á að bjóða.
Góður. Takk fyrir. Ég er sammála.
Kæri Forseti,
Afhverju varstu að ferðast árin 2002-2007 og ekki rakkandi niður íslenskt fjármála kerfi eins og forseta ber að gera?
Afhverju ertu með svona skítlegt eðli og svona ljóta klippingu!
Svo þikir mér þú vera saurbrúkandi drullukjaftur fyrir að voga þér að segja fyrir mótframbjóðandi á almannafæri!
svo þrjár spurningar sem að ég silfurgeitin krefst að þú svarir.
Ert þú,
A. Drullusokkur og aumingi,
B. þjófur og skítseiði
eða,
C. saurkjaftur og móðurriðill
Þakka þér fyrir þetta málefnalega innlegg í umræðuna og góðu spurningar. Ég verð að svara þeim með spurningum.
A. Hefur stórhættuleg pólitísk vænisýki einhvern tímann verið stöðvuð með því að spyrja fólk hvort það sé drullusokkar og aumingjar? (http://www.americanrhetoric.com/speeches/welch-mccarthy.html)
B. Er ég í þeirri stöðu, sem ég er núna, af því að mér tókst að telja þjóðinni trú um að ég væri einmitt sérstakur óvinur „þjófa og skítseiða“?
C. Hef ég einhvern tímann sjálfur kallað einhvern „saukjaft og móðurriðil“ fyrir nákvæmlega sama málflutning og ég iðka sjálfur? (http://www.tilvitnun.is/printableshowquotes.aspx?ID=744&Type=Q&name=)
hahaha svo sem margt satt og rétt , en hver segir að þó að þóra hafi einhverntíma fylgt samfylkingu að hún geri það ekki aftur ??? hún segist reyndar sjálf að hún sé ekki tengd á nokkurn hátt í þá átt í dag , en eftir að hafa hugsað mig vel um , þá vel ég frambjóðanda til forseta Ísland sem ekki hefur komið nálægt fjórflokknum á Íslandi 🙂 nokkurn hátt kvorki nú né í fortíð , fjórflokkurinn á Íslandi er einhver mesti skaðvaldur sem þessi þjóð hefur alið .
Einhver hefur einhverntíma fylgt þessu eða hinu………Ja hérna hér! Er einhver af frambjóðendunum sem aldrei hefur fylgt neinu? Ég ætla rétt að vona að þetta fólk hafi haft einhverjar skoðanir gegnum tíðina. Í mínum huga snýst málið bara ekkert um það. Ég vil þann í embætti forseta sem er grandvör og gegn manneskja. Manneskja sem ég get treyst til að gæta hagsmuna allra en vaða ekki yfir í að taka opinbera afstöðu til einstakra mála. Hvaða málskotsréttinn varðar þá snýst hann frekar um kröfur þjóðarinnar en skoðun forseta. .Bottom line. Ég við forseta sem er almennileg manneskja, ef svoleiðis fæst ekki get ég vel hugsað mér forsetalaust Ísland.
Ég hélt að fólk væri búið að gera sér grein fyrir því að ekki væri verið að kjósa til þings í þessum forsetakosningum og því skil ég ekki þetta flokkahjal hægri vinstri. Annars fínn og nauðsinlegur pistill.
Þóra er að reina að hvítþvo pólitíska slóð sína og bera af sér tengsl sín við pólitík (sem ég myndi líka gera af ég væri á einhvern hátt tengdur Jóni Baldvin og fjölskyldu) Henna kostingabarátta snýst um að svara öllum spurningum með engu svari svo að engum mislíki skoðun hennar……og þá tapar hún ekki atkvæði út af skoðun sinni http://www.dv.is/blogg/iris-erlingsdottir/2012/5/5/thora-islandsdrottning/ góð lesning þetta sem segir hvað þú færð ……..eða ekki…..eða hvað …………hvað fæ ég ????
Af hverju er einhver Davíð Þór Jónsson að svara spurningum sem Benjamín Náttmörður beinir til forseta lýðveldisins?
Takk fyrir frábæra grein. Aldeilis frábæra, sem ég er klár á að verður horft til. Tek undir hvert einasta orð. Hef staðið mig að þeim hroka að hafa MJÖG neikvæða skoðnun á því fólki sem sér ekki í gegn im LODDARA allra tíma Íslands. Og nú verður sótt til sægreifana þeas ef þeir verða ekki fallit fyrir kosningar. Frúin sækir til minnihluta hópa, lesblindra, kitlar lítil börn hendir sér í gólfið og leikur sér svo lengi sem spottlætið er á staðnum. Hún sýnir alþýðu þessa lands lítilsvirðingu. Alþýðu sem hamast við að telja dollaraprinsessuna alþýðulega. Er það fólk sem efnast þar með komið með þetta sjaldgæfa bláa blóð sem svo mörg okkar þrá? Af hverju látum við þetta yfir okkur ganga? Ég hef megnustu skömm á heildarmynd Ólafs Ragnars Grímssonar.Og sálftökuáráttu mannsins. Rifjum upp hvað mistókst 1968, þjóðin tók málin í sínar hendur. Mikið gæfuspor það.
Kannski er Davið með „rauða“ símann á náttborðinu hjá sér eins og Ólafur til að geta rætt málin :o) …nei nei held að það hafi hvert mansbarn getað svarað þessu, stór orð sögð í bræði og beiskju (oft skiljanlegt) þar sem Ólafur hefur á 16 ára ferli sínum gert einn hlut tvisvar rétt en MARGT rangt, ef ég væri með svona mann í vinnu væri ég vissulega löngu búinn að reka hann eða í versta falli ekki framlengja samning við hann.
Það er tvennt ólíkt að vera hugdjarfur og að vera dónalegur. Mér þykir þú vera dónalegur. Mér þykir það líka með ólíkindum að þú byrjir bréfið þitt á ,,Virðulegi forseti“, en bréfið er skrifað með öllu öðru en virðingu.
Finnst þér forsetinn vera hugdjarfur eða dónalegur eins og hann hefur komið fram í ummælum sínum um Þóru?
Ég held að þessar forsetakosningar verði mjög áhugaverðar. Þjóðarkreppan opinberar að tvær stórar andstæðar fylkingar hafa myndast í landinu. Sýn á Ólaf er að hann stendur fyrir fólkið. Sýn á Þóru verður að hún stendur fyrir Samfylkinguna og Vinstri græna.
Á sama tíma erum við því miður með algjörlega vanhæfa ríkisstjórn. Ríkisstjórn sem ætlaði að vera fyrir fólkið. Er ekki meira fyrir fólkið en svo að aðeins þeir sem spiluðu rassinn út úr buxunum fá hjálp, hrekur fjárfestingu og atvinnu úr landi, hvetur fólk til að flytja úr landi, smíðar handónýt frumvörp að allra mati, stuðlar að mengandi stóriðju, tekur á móti Kínverjum kampakát í stjórn en mótmælir þeim í stjórnarandstæðu – og endalaust fleira mætti telja. Ef Þóra ætlar að eiga e.h. von verður hún að kúpla sig frá þessum skríl.
Í fyrsta lagi mun ég ALDREI kjósa Ólaf Ragnar Grímsson til eins eða neins!
Í öðru lagi hefur mér ALLTAF fundist Davíð Þór Jónsson vera erkifífl og það sem hann skrifar hér er einungis til þess fallið að styrkja þessa skoðun mína.
Í þriðja lagi kýs ég EKKI Þóru Arnórsdóttur, fyrst og fremst vegna þess að hún ætlar ekkert að vera að hafa fyrir því að tjá skoðun sína á umdeildum málefnum, eins og t.d. afstöðu sinni til ESB. Þetta er líkt og að kandídat við prestskosningar fyndist það í góðu lagi að svara t.d. ekki fyrirfram um afstöðu sína til hjónabands samkynhneigðra!
Í fjórða lagi Á að slá þetta umrædda tildurembætti af og fá „prótókollskyldur“ þess í hendur Forseta Alþingis.
„Tjónið sem núverandi stjórnarandstaða og hinir glæpamennirnir, þínir gömlu vinir, ollu jafngildir því að hvert einasta hús á Íslandi hafi brunnið til kaldra kola.“
Þarna finnst mér þú taka full sterkt til orða. Vissulega eru margir blankir í dag en sumir voru þó komnir í vandræði fyrir hrun. Svo er líka fullt af fólki sem á nóg af aurum. En kanski er ég að misskilja þig. Ertu til í að rökstyða þessa fullyrðingu?
Þetta eru sorglegir dagar fyrir íslenska þjóð. Persónulegt, einlægt og skorinort uppgjör Davíðs Þórs við forsetann sem hann studdi með ráðum og dáð á sínum tíma verður til þess að einn þekktasti pistlahöfundur landsins, Egill Helgason, ber honum á brýn hatursskrif, hafi ég skilið silfurrefinn rétt. Ref kalla ég hann, því hann hefur undir yfirski ni hlutleysis og í skjóli útbreiddra fjölmiðla kynt undir ýmsa þá elda sem nú brenna heitast á þjóðinni með því að varpa fram ísmeygilegum athugasemdum um menn og málefni, nú síðast með því að reyna lævíslega að klína hatursstimpli á þá sem ofbýður framferði forseta Íslands. Þau hatrömmu viðbrögð sem af orðum hans spinnast endurnýtir hann síðan á bylgjum ljósvakans með aðstoð atvinnukverúlanta, vina og sálufélaga.
Oft hef ég lesið þína greinar Davíð Þór og fundist þær yfirhöfuð góðar, en nú fórstu alveg með það. Þvílíkt endemis bull. Dæmigert raus og vitleisa biturs vinstrisinna.
Frambjóðendur til forseta Íslands eiga ekki að vera tengdir stjórmálaflokkum .
Þó mér finnist mikið til í því sem þú segir í þessu bloggi Davíð, þá finnst mér þú falla í þá rökvillu „að draga með mjög svo afdráttarlausum hætti úr trúverðugleika“ Ólafs með árás á persónu hans (Ad hominem) http://www.nizkor.org/features/fallacies/ad-hominem.html. Nákvæmlega það sama og þú segir hann gera. Ég er algerlega sammála þér að forsetaframbjóðendur eiga að gera sér sérstakt far um að vera kurteisir og málefnalegir en mér finnst að það sama gildi líka um okkur hin. Ég vona að aðrir forsetaframbjóðendur verði bara á hærra plani, því mig langar ekki að kjósa neinn sem tekur þátt í slíku skítkasti og ef enginn hefur vit á að sleppa því þá mun ég líklega skila auðu.
Hvenær ætlar fólk að ná því að Þóra Arnórsdóttir er ekki tengd stjórnmálaflokki meira en nokkur annar. Eflaust er hún vinstri-sinnuð og kaus líklegast Samfylkinguna – eins og stærstur hluti þjóðarinnar. En tengir það hana eitthvað við stjórnmálaflokk frekar en hin 85,5% þjóðarinnar sem kusu í Alþingiskosningunum. Vissulega starfaði hún einu sinni fyrir Alþýðuflokkinn en það eru áratugir síðan. Ekki nema þú talir hér um ÓRG – eina frambjóðandann sem hefur raunveruleg tengsl við stjórnmálaflokk enda þingmaður til margra ára.
Hárrétt hjá þér og ÓRG var formaður stjórnmálaflokks og var reyndar í framsókn áður. Þetta er svo vitlaus umræða og fátækleg hjá þessum aðilum sem eru að reyna að tengja Þóru við ríkisstjórnina að það er með ólíkindum. En Þóra hefur komið fram og sagt frá því að hún hafi starfað í ungliðastarfi með Alþýðuflokknum- en hún, eins og svo margir aðrir Alþýðuflokksmenn fóru ekki í Samfylkinguna. Hvað hún hefur svo kosið veit hún ein líklega… bara eins og ég og þú einir vitum hvað við höfum kosið.
Það er þetta með…vitjunartímann…menn geta oft blindast….
Bara til að hafa hlutina rétta þá hefur Þóra starfað og verið í fremstu víglínu fyrir vinstri vængir, þá sér í lagi á háskólaárum sínum svo ópólitísk er hún ekki gott fólk enda eru rauðmálaðir innveggir heimila ættmenna henna hvert sem litið er.
Hvað með Ólaf Ragnar – er hann ekki úr fremstu víglínu vinstri vængsins? og hvað er þetta með rauðmálaða veggi ættmenna hennar????? skiptir það einhverju máli? Var ekki Ólafur Hannibalsson í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn á sínum tíma? Og hvað segja ættmenni þín um þig?? Get ég dæmt þig útfrá ættmennum þínum? Hvaða rugl er þetta. Þóra hefur aldrei neitað því að hafa verið í framboði fyrir Alþýðuflokkinn svo Anton minn… þú ert að flytja gamlar fréttir.. en ég hlakka til að heyra um ættina þína og hvernig hver og einn sem þar er segir til um persónu þína.
Trúðu mér, ég veit allt um Ólaf og fortíðina, hann á ennþá titilinn óvinsælasti stjórnmálamaður Íslands sögunnar. Það var bara einfaldlega fólk að efast um að Þóra hefði komið nálægt pólotík almennt sem þú svo og svaraðir. Ólafur Hannibalsson var eitthvað villuráfandi með hvar hann ætti inni eins og nafnin hans Grímssson.
Um mínar ættir er það að segja að faðir minn er Trausti Gunnarsson vélstjóri og bifreiðastjóri, sem er sonur Gunnars Guðmundssonar einnig bifreiðasjóri og síðar forstjóri sem var giftur Sigríði Eiríksdóttur húsmóður. Móðir mín er síðan heimavinnandi húsmóðir í Meðallandi í Skáftárhrepp sem er dóttir Anton Guðmundssonar vélvirkja (eins og ég) og Úlfhildar Úlfardóttur húsmóður. Þér að segja má vel dæma mig út frá ættmennum mínum, sver mig vel í ættina með kostum og göllum eins og all flestir sem rétt eru feðraðir.
………en bara svo að þú vitir það þá hugnast mér hvorugur þessara frambjóðenda sem hafa hér borið á góma.
Takk fyrir svarið Anton. En ertu þá að segja að fólk eigi að dæma Þóru útfrá Jóni Baldvin? hann er föðurbróðir hennar!!! Eru skoðanir einstaklinga nákvæmlega eins og annara í fjölskyldum þeirra? Og á það þá við um pólitískar skoðanir eða skoðanir á öllu?
Slagurinn er hafinn. Round 1: Oli med hogg undir beltisstad! Ahorfendur pua.
Þennan bréfritara myndi ég aldrei kjósa sem prest og því síður biskup
Nei. Guð forði okkur frá prestum og biskupum sem eru svo orðljótir að vitna orðrétt í forsetann.
Myndir þú kjósa Ólaf sem prest?
Já, eða jafnvel kaupa af honum notaðan bíl?
‘Olafur er frábær foseti hann er eini maðurinn sem getur stað upp í harinu á Jóhönnu ég vil hana og Steingrím burt. Ég ætla kjosa ‘Olaf.
Ólafur ver okkur gegn þessari ríkisstjórn og hennar afglöpum en ég var að vona að Ari Trausti næði sér á strik, ég hef mest dálæti á honum eins og staðan er í dag, hann er svona Kristján Eldjárn nútímans
Þetta er harðort en ÓGR verðskuldar því miður öll ummæli Davíðs Þórs. Hann lofsöng peningamennina svo hastarlega að maður fór hjá sér; snilld (!) þeirra í fjármálum stafaði af sérstöku víkingageni! Var maðurinn með öllum mjalla? Þóra Arnórsdóttir smækkar ekki við nein ummæli Ólafs Grímssonar en hann kemur sífellt betur upp um sjálfan sig.
Þakka þér fyrir þitt innlegg, Hörður Hermann Valsson. Það geta verið vofveiflegir tímar framundan. Ólafur Ragnar, með öllum sínum göllum, tel ég vænlegasta og öruggasta kostinn til að standa vaktina á tímum sem þessum þar sem „New World Order“ er að kolkrappast um allar jarðir og svo virðist sem miðju-stjórnmálin átti sig engan veginn.
Takk fyrir góða og skelegga grein.
Rosalega er þessi umræða hér á lágu plani. Þetta segir allt sem segja þarf um ykkur sjálf. Keppni í skítkasti getur aldrei verið til góðs.
Sorglegt hvað við erum alltaf jafn vitlaus sem þjóð. Vinstri menn halda að ávextir vaxi á trjánum án áburðar og naga ræturnar í þokkabót. Hægri menn undirbúa jarðvegin vel en sólunda ávöxtunum.
Er hægt að ætlast til að umræðan sé á háu plani þegar Ríksifjölmiðlarnir setja fordæmið?
Davíð Þór, þú værir fínn forseti! Bráðskarpur og kannt svo sannarlega að koma fyrir þig orði.
Fatt er skemmtilegra en ad lesa svona iskaldar og flottar greinar sem thessa.
Word my good man!
Harður pistill og óvæginn. Því miður er hvert orð satt!
Davíð! Þú ert góður penni! En gætir þú ekki skrifað svona neikvæða grein um fleiri framámenn þjóðarinnar, ef þú nefnir bara það neikvæða í gjörðum þeirra, en sleppir því jákvæða? Og gætur þú ekki jafnvel skrifað svona neikvæða grein um sjálfan þig? – Sá spyr, sem ekki veit!
er hann ekki bara afrbýðissamaur? ég held það
Þú kemur tiltölulega óskemmdur úr guðfræðinni Davíð Þór. Hraustlegur og þarfur pistill!
Gott hjá þér Davíð Þór Ólafur er fljótur að skifta um lit, áður var hann grænn
svo rauðu og núna er hann bár.
Frábær grein 😉