Í gær skrifaði ég pistil um það hvernig kosningabarátta Ólafs Ragnars Grímssonar hefur komið mér fyrir sjónir. Ég gat ekki stillt mig um að nota stór orð, en bað fólk að líta á rökin og staðreyndirnar frekar en orðfærið. Ég gætti þess í hvert sinn sem ég notaði stórt orð að styðja notkun þess rökum og staðreyndum.
Pistillinn olli usla. Viðbrögðin í athugsemdakerfi DV hafa valdið mér áhyggjum. Þar er ég ítrekað sakaður um að fara með róg og lygi án þess að einu einasta atriði í greininni sé hnekkt efnislega.
Það sem dregið er inn í umræðuna er:
a) Að ég sé Samfylkingarmaður úr herbúðum Þóru (Stefán Auðunn Stefánsson). Þannig skil ég a.m.k. orðin „Samfýósi“ og „kráka dregin upp úr hreiðri“. Staðreynd: Ég hef aldrei kosið Samfylkinguna og þekki Þóru Arnórsdóttur ekki persónulega, hef skiptst á orðum við hana – en ekki það sem af er þessu ári.
b) Að ég sé „pokaprestur og prófastur til Bleiktog bláttþinga“ sem ráðist á ÓRG „með buslubænum og kristilegri skapvonsku.“ (Jóhannes Ragnarsson) Af sama toga: „sorglegt hvað þessi þjónn guðs er bitur og reiður í skrifum“ (Sigursveinn Örvarsson)
c) Að ég sé bara að láta bera á mér og komast í umræðuna. (Ívar Örn Hrólfsson) Eins og það sé mér eitthvað yndi að vera miðpunktur umræðu af þessu tagi.
d) Að ég sé „DRULLU-Prestlærður Grínari,,sem á erfitt með að fá hempu,, oftast drukkinn eða skakkur,,enginn furða!!!“ (Bjössi í Klöpp) Staðreynd: Ég hef ekki einu sinni gert tilraun til að fá hempu og hef verið án hug- eða skapbreytandi efna í 7 ár, þrjá mánuði og þrjá daga.
e) Að það sé „Ekki skemmtiegt að prestlærður maður sé svona skemtilega geggjaður““. (Jón Marteinsson) Hann bætir því við að núverandi ríkisstjórn geri skjaldborg um „helvítis útgerða pakkið“. Ég er ekki viss um að Jón hafi fylgst með umræðum um ný lög um sjávarútveg og hverjir risu einarðlegast gegn þeim.
f) Að „Guðfræðingurinn“ sé „að missa sig“ og ætti „að lesa nokkrar blaðsíður í hinni helgu bók til að róa sig“. (Kristjana Guðmundsdóttir) Af sama toga: „Held að hann Davíð vinur minn sé alveg búin að missaða!!“ (Sævar Sigurðsson)
g) „æ farðu og borgaðu icesave Davíð… eða mokaðu skurð einhverstaðar, a.m.k. hættu að koma með svona þvælu í blöðin, þvælu sem þú getur engan veginn bakkað upp með staðreyndum“. (Reynir Freyr Pétursson) Í fyrsta lagi var þessi „þvæla“ ekki sett „í blöðin“ heldur skrifuð sem færsla á mína persónulega bloggsíðu. Í öðru lagi geri ég ekki annað en að bakka orð mín upp með staðreyndum.
h) „Hefur þessi guðsmaður unnið líkamlegt áreynslustarf ekki sé ég það fyrir mér.En hann kemur svona annarslagið og bullar út í loftið telur sig stóran litli kallinn:)“ (Ómar Kristvinsson) Ómari til upplýsingar hef ég unnið við löndun, uppskipun og útskipun, landbúnað, sjómennsku og í byggingarvinnu. Ég er 182 sentímetrar.
i) Að ég sé „sjúkur maður“, skrif mín séu ekki eðlileg og líkist því ekki að vera eftir helibrigðan mann. (Sigurður Sigmannsson) Hann bætir því við að ég virðist telja kjósendur Ólafs hálfvita eftir að hafa lesið grein þar sem ég segi: „Ég tel kjósendur Ólafs Ragnars Grímssonar ekki heimskari eða verri manneskjur en þá sem hafa meiri mætur á öðrum frambjóðendum.“ Af sama toga er þessi athugasemd: „Mikið skelfing er þetta rætið og ómálefnalegt og lýsir kannski best bréfritara. Svona ritar bara sjúkur maður.“ (Þröstur Elfar) Og þessi: „Ég held að Davíð eigi verulega bágt, við ættum kanski að biðja fyrir honum.“ Og þessi: „fárveikur einstaklingur.“ (Jóhann Helgi Kristinsson) Og jafnvel þessi: „Aumingja maðurinn!“ (Birna Guðmundsdóttir)
j) „Ólafur er svo miklu stærri peróna en þú. Haltu kj. guðsmaður. Íslendingar vilja Ólaf, skilurðu það ekki. Skítkast frá ómekilegri persónu, skiftir engu máli lengur.“ (Birgir Ás Guðmundsson) Ég er einkum hrifinn af því að vera hreinlega sagt að halda kj. Sterkt vopn í rökræðu.
k) „Við þurfuð að láta nýja biskupinn vita um þetta skemmda epli í kirkjunni. Vesalingur.“ (Magnús Þórðarson) „Læk á það“ (Ingigerður Guðmundsdóttir) Skoðanir studdar rökum með vísun í heimildir gera mig með öðrum orðum óhæfan til að gegna núverandi starfi og biskupinn ætti að skerast í leikinn. Skoðanakúgun much? Af sama toga: „Alltaf sami klámkjafturinn á Davíð Þór. Séra Davið Þór? Vonandi aldrei.“ (Guðlaugur Ævar Hilmarsson) Ég býð verðlaun fyrir að finna eitt klámfengið orð í pistinum sem um ræðir.
l) „Algjörlega innihaldslaust rugl! Kjósum Ólaf Ragnar hann og Dorrit eru þjóðinni til sóma. Latum ekki ESB landráðaöflin ná Bessastöðum!“ (Örn Ægir) Hann bætir því við að ég sé „algjör auli“ – sem þá væntanlega flokkast ekki sem „innihaldslaust rugl“. Ólafur er m.ö.o. í huga Arnar Ægis vörn gegn „ESB landráðaöflunum“ jafnvel þótt algerlega borðleggjandi sé að samningur um ESB fer alltaf í þjóðarakvæðagreiðslu, óháð því hver er forseti eða hvaða skoðun hann eða hún hefur á samningnum.
m) Að ég sé að „reyna að ná i friðhelgi kvenna með því að rægja óla kallinn“ (Guðmundur Falk Náttfari)
n) „Davíð alltaf fyndinn 😦 Annaðhvort í porno eða í prestsgalla, en að úthúða góðu fólki er of flókið fyrir hans skítlega eðli!“ (Ágúst Örvar Ágústsson)
o) „Svona verða menn sem læra guðfræði.“ (Sævar Einarsson) Samkvæmt því eru hér og hér listi yfir fólk sem er/var nákvæmlega eins og ég.
Þetta gerir það að verkum að það eina, sem ég hef áhyggjur af að missagt sé í pistlinum mínum, sé þessi setning: „Ég tel kjósendur Ólafs Ragnars Grímssonar ekki heimskari eða verri manneskjur en þá sem hafa meiri mætur á öðrum frambjóðendum.“ Ég ætla þó að standa við það og vona að þeir sem tjá sig á netinu séu ekki þverskurður af fylgi forsetans. Sjálfur þekki ég háttvíst og greint fólk sem styður hann. Það varðar ekki vinslitum að þeir meti það, sem að þeirra mati er merki um styrk og festu, meira en sannsögli.
Ég tíni þetta til bara svona til að benda á það á hvaða plani opinber umræða á Íslandi er. Það er ekki beint hvetjandi til þátttöku í henni að sitja undir ásökunum um andlega vanheilsu, óeðli, lygar og ómerkilegheit án þess að neitt efnislegt sé tilgreint sem missagt sé, eftir að hafa sett fram athugun ítarlega studda rökum og heimildum – að vísu með óvenjulega tæpitungulausum hætti. Það er jafnvel vegið að atvinnuöryggi mínu.
Og hér kemur brandarinn:
Allt þetta fólk fer í dag og kýs margafhjúpaðan lygara og rógbera til embættis forseta Íslands, eftir að hafa sakað mig um lygar og róg án þess að hafa getað tilgreint eitt einasta dæmi um að ég hafi farið með ósannindi, sárhneykslað á því lága plani sem íslensk umræða er á, sannfært um að það sem helst sé að umræðunni sé … ég.
Verð að viðurkenna að ég er máttlaus af hlátri eftir þennan pistil en á meðan ég þerri tárin þá viðurkenni ég að þetta er líka sorglegt. Grátbroslegt.
Svo er sonur Valla dæmdur fyrir meinyrði! Jahérna þvílíkur samansöfnuður af comment-um.
Þetta er nöturleg samantekt. Ömurlegt hvernig umræðan er hér á landi. Það er ekki flóknara en það.
Þetta eru góðir pistlar hjá þér, báðir.
Vil minna á mjög málefnalega athugasemd frá undirrituðum.
Þakka þér fyrir góð greinarskrif 😀
Ég skoðaði þetta einmitt frá þessum sjónarhóli. Það er eins og allt vanstilltasta fólk landsins sé saman komið í kommentakerfunum. Og svo eru nokkrir svona á moggablogginu. Alveg kostulegt að lesa þessi viðbrögð.
Mér fannst þú að vísu fara offari en velkominn í hópinn. Þú munt ekki frekar en ég getað skrifað stakt orð án þess að fá á þig prest og guðfræðinga og kirkjusteypu frá fólki sem spyr ekki um rök heldur skoðar hver flytur þau. Verstir eru hræsnararnir, verri en heimskingarnir.
Nokkuð til í því. En heldurðu að þú hefðir yfirhöfuð rekist á þennan pistil ef ekki hefði einmitt verið fyrir „offarið“?
Það sorglega við greinaskrif á Íslandi (og kannski víðar) er að greinarnar vekja ekki athygli nema að í þeim sé slatti af háði og sterku orðalagi. Þegar maður gerir grín af viðfangsefninu er eins að fólki finnist það svo frábært en grein með sama innihaldi sögð án háðs eða glettni fær litla athygli. Það þarf alltaf að skemmta fólki. Þetta vissu Rómverjarnir. Þeirra útgáfa af Ólýmpíleikunum var hringleikahúsið. 😉
Davíð Þór – takk fyrir góða pistla.
Ég held reyndar að fæstir, ef einhver, af þeim sem kommenta á þennan fávitalega hátt hafi raun lesið pistilinn. Það er bara henst af stað í einhverri geðshræringu og látið vaða.
Takk fyrir góða pistla.
Skítkast á aldrei rétt á sér – jafnvel þótt skrifást sé á við fjandann.
Þetta er rót vandans sem við glímum við á Íslandi. Umræðuhefðin er á svo lágu plani og snýst öll um hver sagði hvað og staðlausar dylgjur í stað málefna. Rótarsmitið er því miður mjög útbreitt því ég sé sjaldnast til sólar í þeim efnum. Blogheimar eru nifheimar nýðsins. Fæstir vel gerðir menn hafa áhuga á því að taka þátt í þjóðfelagsgerð- og umræðunni.
Það kemur að því að e.h. tekur af skarið og stoppar þessa vitleysisbraut sem við erum á. Ég sá alltaf fyrir mér að sú forysta kæmi frá þinginu en hef jafnt og þétt misst trúnna á það enda eru þingmenn síst betrungar í þessum efnum.
Ég veit svo sem ekki hvað er best að gera til þess að koma umræðuhefðinni á betra plan?
Ég held að það sé engin persóna eða hópur að fara að koma að ofan og handstýra umræðunni uppá hærra plan. Forsetaembættið í réttum höndum gæti þó hugsanlega gert góða hluti í þeim efnum, en það er ekki góðra hluta að vænta úr þeirri áttinni, ef marka má skoðanakannanir. Ég held að fólk sem vill umræðu á háu plani geti lítið gert annað en að ganga á undan með góðu fordæmi og bjóða hina kinnina þegar ráðist er á mann með rakalausum þvættingi.
Þetta eru Íslendingar sem þú ert að tala við. Davíð Oddsson þá forsætisráðherra sagði í viðtali á RÚV að íslenska krónan væri rétt skráð en bæði bandaríkjadollar og Evra væru vitlaust skráð og þá trúði þjóðin því. Nú segir Ólafur Ragnar t.d. að hann sé nýr í embætti og þá trúa um 60 % þjóðarinnar því. Það er ekki meira en Guð gaf. Ef þú ert ráðherra eða forseti þá slærðu bara einhverju fram og það er sannleikur. Reyndu að gera athugasemdir við það og þessir trúgjörnu bilast. Gott inlegg Davíð.
Það er oft grátlegt að lesa kommentakerfin á fréttamiðlunum. Einn og einn kemur með málefnalega umræðu en er kjaftaður í kaf með alls kyns lýðskumi og oftar en ekki farið út í dónaskap .þegar fólk er ekki með rök. Oft á tíðum skelfilegt að lesa þetta
Ætlaði að skrifa komment – en ákvað að hætta við það vegna geðshræringar. Kærar þakkir, Davíð, fyrir málefnaleg og rökstudd skrif. Segi bara —aumur er umtalslaus maður.
Ég er ekki sammála þeirri skoðun þinni að kjósendur Ólafs Ragnars Grímssonar séu ekki heimskari eða verri manneskjur en þeir sem hafa meiri mætur á öðrum frambjóðendum. Ég held að leitun sé á öðru eins illþýði og vísa því til sönnunar á athugasemdaskrif þeirra við pistil þinn á DV. Skoðanakannanir sýna að allstór hluti óupplýstari og menntunarsnauðari landsmanna hneigjast til að kjósa ÓRG. Meðal þeirra eru væntanlega öll bitru og eldsúru gamalmennin sem halda uppi samræðum við sig sjálf á útv. Sögu, karlmenn sem hata konur og sú sérstaka tegund kvenna sem þola illa að sjá kynsystur sínar ná árangri í lífinu.
Vá, ég er orðlaus…. ég verð sorgmædd að lesa slík skrif, nánast missi alla trú á samborgurum okkar hér á Íslandi. Þvílíkur munnsöfnuður hjá fólki og ómálefnalegar upphrópanir!! En ég býst við að þú sért með þykka brynju fyrir svona árásum og takir þetta vonandi ekki persónulega (kannski óhjákvæmilegt)? Gangi þér vel í framtíðinni og vonandi verður breyting á mál- og umræðuhefð í framtíðinni, það á enginn að þurfa að þola þetta.
“A nation of sheep will beget a government of wolves.”
― Edward R. Murrow
Fyrirgefðu, en mér finnst þessi niðurrif í forsetakjöri búin að vera mjög leiðinleg, ekki bara þín heldur svo margra annarra. Ömurleg reyndar. Þessi níðskrif lýsa best þeim sjálfum sem skrifa þau. Hversu uppbyggjandi hefði ekki verið að tala á kurteisum nótum og líta á gjörðir td. núverandi forseta með tilliti til hvers ætlast er til af honum sem og stjórnarskrána hvað hún segir nákvæmlega. Eins varðandi þá aðra sem hafa verið níddir niður, aðallega Þóra og Herdís. Hefði ekki verið betra að tækla þetta á kurteisan hátt? Mér fundust skrif þín í gær léleg og ókurteisleg, en það er bara mitt álit. Aðrir geta haft sitt álit. En maður sem er fræðslustjóri prófastsdæmis …. hefði talið að hæfur maður hefði getað orðað skrifin kurteislegar. Sama hvaða skoðanir hann hefur 🙂
Ég hjó eftir því einhverju sinni fyrir löngu þegar Davíð Þór sagði: Enginn hefur farið flatt á því að vanmeta greind almennings. En, þetta er náttúrlega tekur út yfir allan þjófabálk.
Æ já svona var það og svona er umræðan. Er nokkur furða þó mörg okkar hafi óskað eftir forseta með góð gildi, með heiðarleika og manngæsku að leiðarljósi? Það á nefnilega við um svo mörg okkar við við erum komin með upp í kok af ömurlegri umræðu og prisnippleysi. Við viljum sæmilega siðað samfélag.
Síðasta afneitun ÓRG í RÚV kvöldið fyrir kosningar var þegar hann kannaðist ekkert við að hafa talað mikið um ríkisstjórnina í kosningabaráttunni. Mig langaði að taka saman allar „klippurnar“ úr fyrri þáttum þegar hann tuggði endurtekið „Alþingi er rúið trausti“, „traust á Alþingi hefur aldrei verið minna“ og svo framvegis. Kannski taldi hann sig geta neitað þessu af því að hann sagði oftar Alþingi en ríkisstjórn, en það væri bara orðhengilsháttur. Þetta var nett ógleðivaldandi.
Já jahérna hér… strax og íslendingar eru ósammála er hinn adilinn sakadur um vanhæfni og vitfyrringu og thar med málid afgreitt í theirra huga… sorglegt 😦 En svona er Ísland í dag…
Davíð, mér sýnist nú að þú hafir sjálfur boðið upp á þessi viðbrögð. Fyrri pistill þinn var jú ekki beint kurteislega orðaður. Hann var þungur í rógi og stóryrðum, lítt málefnalegur og illa rökstuddur.
ÓRG er ekkert öðruvísi nú en þegar hann var kosinn fyrst – og heiftin gegn honum núna er minni en hún var þá (ég veit ekkert hver þín afstaða var þá). Ég held að Íslendingar séu almennt nógu skynsamir til að geta sjálfir vegið og metið hvað séu lygar og áróður osfrv.
Sjálfur hef ég ekki tekið afstöðu til þess hvort ÓRG hafi logið/áróið meira eða minna en aðrir (en væri hissa ef hann ætti ekki vinninginn), ég hef verið fjarri umræðunni að mestu leyti. Ég kaus Þóru en ekki af því að ég vildi fella ÓRG eða kjósa sameiningartákn (yfirlýst trúleysi hennar skar endanlega úr um hvern ég kaus), fyrst og fremst kaus ég Þóru til að styðja möguleikann á að fella sitjandi forseta. En mig langar að benda á örfá atriði:
1) ÓRG hefur leitt byltingu í stjórnarfari á Íslandi með því að veikja þingræðið verulega. Loðin stjórnarskrá bauð upp á það, og með „raunverulegu“ mótframboði gegn sitjandi forseta hefur byltingin verið fest í sessi, hún er ekki lengur einkaframtak ÓRG:
2) Forseti Íslands er alltaf forseti allra Íslendinga (alveg eins og sitjandi ríkisstjórn er alltaf ríkisstjórn allra Íslendinga). En hann á einmitt ekki að vera sameiningartákn heldur sjálfstæður valdapóll í stjórn landsins, fulltrúi „þjóðar“ gegn þingi. Þetta er bylting ÓRG sem hefur núna verið staðfest. Og meirihluti þjóðarinnar styður.
3) Synjun á undirskrift ICESAVE byggir ekki á útreikningu ÓRG heldur túlkun hans á eindregnum vilja stórs hluta þjóðarinnar (og hann þarf heldur ekki að meta hvort um meirihluta eða minnihluta er að ræða). Forseti á alltaf að bregðast svona við undir svipuðum kringumstæðum.
4) Forsetinn á einmitt að vera vörn gegn misbeitingu valds af hálfu Alþingis eða sitjandi ríkisstjórnar. Það er eini tilgangur embættisins. Íslendingar þurfa ekki „sameiningartákn“, Lýðræði þrífst í mótsögnum, andstöðu, umræðum og ekki síst valddreifingu.